Flokkur: Hnoð

15.04.2008 11:18

Rækjubragurinn.

Hæ hæ það er nú langt síðan þessi bragur var settur á blað. Þar sem ég er að setja inn myndir frá þessum tíma þá fannst mér tilvalið að láta þetta fylgja með. Þannig var að við þurftum að taka svona talningarsýni af rækjunni til að vita hversu margar væru í kíló. Sýnið var tekið í niðursuðudós og svo talið úr henni. Þetta var nú aldrei vigtað svo að það var nú eitthvað misjafnt sem menn tóku í dósina þannig að þetta gat munað einhverjum tugum á talningunni ef verið var í smárri rækju. Eins og bragurinn ber með sér voru stundum einhverjar efasemdir um niðurstöðu talningarinnar.


Stærðarathugun á rækju.

Sýnið það taldi ég samviskulaust
Og sagði við skipper og brýndi þá raust
Að betur það myndi á blaðinu fara  
Að béaðar tölurnar lækkuðu bara

 Talning á bátum og togurum er
Töluvert lægri en við sjáum hér
Því virðist mér vera það vandræðaminnst
Að velja þá tölu er líklegust finnst

 En þetta vill skipstjórinn alls ekki sjá
Og staðreyndir allar hann heimtar að fá
Helvítis sýnið með salla skal talið
En sleppa þó krílunum er okkur falið

 Ekki að telja þau með til að sjá
Töluna sirka sem draga þarf frá
Sjáum af því hvað mér sæmst er að gera
Sem sagt að láta alla talningu vera

 Ný tíðindi eru af talningar grein
Að telja tvær saman sem væru þær ein
Þá vafalaust fá má viðunandi tölu
Er valda mun öllu um verðmæti og sölu

 En nú held ég blekking sé borin þar inn
Og best væri talningin óbreytt um sinn
Því rækjan hún stækkar ei hætisins hót
Hér þó á fjöldanum ráðin sé bót.

29.12.2007 02:46

Kveðið um einstaklega latan mann


Danni er mjög í maga veikur
Og mikið þjáist út af því
Að engjast úti er enginn leikur
En öllu betra að hafa frí

16.12.2007 12:42

Hugleiðing í aflaleysi á rúllu

Ég horfi í hafdjúpin gráu
Og hugsa til hvers er ég hér
Að innbyrða fiskana fáu
Sem forsjónin úthlutar mér

16.12.2007 12:38

Í lok veiðiferðar

Heldur sorglegt er að sjá
Hvað Sjonna hrjáir mein
Tóbaksleysið tekur á
Tungan orðin hrein

Þröstur greyið þraukar enn
Þótt sé vindlum rúinn
Veit sem er að verður senn
Vegalengdin búin.

  • 1