Færslur: 2012 Febrúar

29.02.2012 01:33

Túr 8 á Sturlu.

 

26.2.2012 13:32

8. túr.

Hann byrjaði bara svipað og venjulega á því að fara út. Veður var gott. Eiginlega svo gott að maður hefði helst viljað vera í fríi en það er nú ekki í boði þegar mann langar. Það er allt háð ákveðnum leyfum og með nokkrum fyrirvara. Við áttum að fara kl 17.00 en einhver bið var á því að sleppt væri vegna þess að verið var að hlynna að einhverjum tækjum í brú sem tafði þá brottför um sirka klukkustund. Nú var haldið í Kolluálinn. Komnir þangað um eittleitið og lagðir 29 rekkar sem skiluðu 70 körum af blöndu en þó var reyndar mest af þorski. Næsta lögn sem var líka 29 rekkar var aðeins lakari. Svo var farið að reyna við ýsuna sem hafði í för með sér minnkandi afla. Við erum alltaf bundnir af þessum aflatakmörkunum sem gerir það að  okkur er nauðsyn að hafa sem flestar tegundir í stað þess að veiða bara eina. Þar sem hægt gekk að draga þá var sleppt niður á annarri lögninni þegar eftir voru fjórir rekkar og lagðir 25 til að rétta af. Á þessar þrjár lagnir fengum við 169 kör. Við morgunvaktarmenn fengum að leggja í rúman klukkutíma. Ekki veit ég hvað dregið var mikið nú á morgunvaktinni en aflinn var 9 kör Veðrið var risjótt eins og venja er á þessum árstíma. Við héldum okkur við að reyna að fá sem minnst af þorski en hann slæðist alltaf með.  Reynt var við ýsu og við fengum eitthva af þeim eðalfiski svo var náttúrulega langa og keila til upfyllingar. Búið var að draga síðustu lögn um miðnætti á mánudagskvöld en það voru 24 rekkar. Ekki er ég nú með það hvað var á einstakar lagnir en aflinn í heild endaði í 256 körum. Við fengum fyrir þennan túr nýjar grindur til að standa á í aðgerðinni en gömlu grindurnar voru of mjóar þegar maður þarf að standa af sér velturnar á hlið. Ekki er enn búið að laga veiluna í blóðgunarkarinu þannig að það er enn nokkuð af fiski sem merst í því. Vonandi verður nú bráðlega ráðin á því bót. Við komum í land kl 07.30 í morgun og brottför er á morgun kl 17.00. Ég álpaðist á bókamarkað og fjölgaði í bókaskápnum um 9 bækur þannig að ég er sæmilega birgur fram á vorið því ekki er ég hraðlæs þannig að þetta endist nokkuð. Svalt úti núna þessa stundina og hálka. Sá saltbíl fara suður reykjanesbrautina áðan.  Læt þetta duga að sinni Góðar stundir.

22.02.2012 02:33

Túr sjö á Sturlu.

17.2.2012 13:12

7.  Túr.

Jæja enn á sjó og er að byrja að skrifa núna en við fórum út Þann 15. Kl 19.00. Stímið var frekar stutt þannig  að ég var ekki neitt að starta tölvunni þessa stund enda leiðinda veður. Grindavíkurdýpið varð fyrir valinu að þessu sinni og byrjuðum við að leggja um kl 20.45 þá var rok og rigning og bara virkilega leiðinlegt sjólag til viðbótar. Við þurftum að setja upp línu á einn rekka og var ég í því milli þess sem ég var að græja millibólin. Lagt var með 5 rekka milli bóla. Þeir slitu svo strákarnir þegar eftir var að leggja tæplega rekka þannig að þetta varð endalaust. Eitthvað var þetta látið liggja áður en byrjað var að draga en það hófst um kl 4.00. Það var svona góður vinnukaldi á okkur þarna eða um 24-25m/sek samkvæmt því sem kom fram hjá skipstjóranum á Brúarfossi sem lenti í bilun við aðalvél stutt frá Garðsskaga og var næstum farinn upp meðan viðgerð stóð yfir. Aflinn var nú ekkert mok eða 46 kör blandaður afli. Búið var að draga upp úr miðnætti og byrjað fljótlega að leggja aftur.

19.2.2012 13:41

Jæja þá styttist í túrnum bara eftir þessi lögn og ein enn. Aflinn orðinn 167 kör að sjálfsögðu blandaður afli eins og hefur verið og verður sjálfsagt það sem eftir er. Nokkuð hefur verið af lýsu hér á svæðinu og er það bara ágætisbúbót því stundum fæst þokkalegt verð fyrir þann ágæta fisk. Annars er þetta mest Þorskur og langa. Við gerðum smá breytingu í afturlestinni fyrir þennan túr þannig að nú eru öll lifrarkörin á gólfi og því rennur betur í þau. Svo þurfum við að minnka fiskmagnið í þessa lest til að þægilegt sé að koma frá sér gotunni. Þá verður þetta bara næstum því fullkomið. Komum í land um kl 5 í morgun og förum á morgun kl 17.00. aflinn um 260 kör þannig að við megum vel við una eða þannig. Læt þetta duga að sinni Góðar stundir.

15.02.2012 17:09

Túr 6 á Sturlu.

Fórum út kl 17.00 í dag og stefnan tekin á Kolluálinn að ég held. Veður nokkuð gott en að sjálfsögðu er ekki líklegt að það endist lengi.

14.2.2012 00:03

Kolluállinn var nú ekki byrjunarreiturinn heldur fórum við út á svokallaðan Wilson banka sem er eitthvað dýpra. Kann ekki að staðsetja hann svo nákvæmt sé. Þar fengum við allnokkuð af þorski í byrjun en svo dró  úr því þarna á fyrstu lögninni. Samt var ekki hægt að segja að það væri einhver ördeyða. Mér þykir líklegra að reynt hafi verið að veiða blandaðan afla  og þá er betra að gera það frá upphafi. Tvær fyrstu lagnirnar voru bestar en svo dró úr því og var lakast á síðustu lögnina. Þá vorum við þó reyndar að fá allnokkuð af vænni ýsu. Túrinn endaði síðan í 233 körum og nú er að sjá hvort það er mikið eða lítið í þorskkörunum. Ég var alla vega að reyna að hafa nóg í þeim. Þetta var ekki svo stór fiskur. Ég var lestarmaður núna. Ég er það yfirleitt ef við erum með alla vana. Kann því bara nokkuð vel. Það er tilbreyting en þó finnst mér tíminn lengur að líða í þessu heldur en þegar ég er í skiptikerfinu. Í morgun ætlaði ég að fara að taka til í beituklefanum þar sem lítið var að gera en ég var ekki nema rétt byrjaður á því þegar báturinn fór að velta allmikið. Þegar svo var komið þá var nú ekki hægt að vinna þar niðri af neinu viti. Veltingurinn hélst megnið af deginum þannig að klefinn var látinn vera.  Ég segi bara eins og Manni vélst. segir svo oft Þetta hleypur nú ekkert frá mér. Áætlaður komutími er kl 03.00 í Grindavík. Kom heim um fjögurleitið. Fékk far með Óla á jeppanum og því fékk Bogga að hvílast í þetta sinn. Það var svona hægur vindur þegar komið var í land og súldarvottur. Þessi innivera var nú öðrum lík að mestu ég geri þó alltaf eitthvað í hvert sinn sem ég er í landi. Í þetta skipti þreif ég og bónaði Honduna en það var nú aldeilis kominn tími á hana í bón. Líklega komið á annað ár síðan hún fékk slíka meðhöndlun. Svo var ég í dag að dúlla mér í skúrnum en forðaði mér þegar ég fann að framkvæmdaáhuginn var að rumska. Það er allt of snemmt að vekja hann svona um miðjan vetur. Til þess að sefa hann þá settist ég við tölvuna og það er alveg óbrigðult til að drepa niður allar slíkar hugrenningar.

Mér þykir hálfleiðinlegt hvað ég er lítið duglegur við myndatökur og að setja inn myndir en það verður bara svo að vera. Lesendum þakka ég lesturinn að sinni Góðar stundir.

08.02.2012 16:40

Túr 5 á Sturlu.

Jæja þá er nú fimmti túrinn byrjaður og Grindavíkin  kvaddi okkur með roki og rigningu kl 17.00 í dag. Ferðinni er heitið í Kolluálinn held ég. Við tókum eina björgunargallaæfingu eftir kvöldmatinn. Þetta var tímakapphlaup og náði ég því að vera í neðsta sæti og lít svo á að ég sé vel að því kominn. Það verður alltaf einhver að vera á botninum. Samkvæmt því hefur snerpu minni nokkuð hrakað og eru fyrir því ákveðnar ástæður sem ég tel ekki þörf á  að tíunda  hér. Alla vega er mjög gott að taka svona æfingar til að  kynnast göllunum og hvernig á að ganga frá þeim þannig að þeir virki eins og ætlast er til. Núna erum við með einhvern nema úr fisktækniskólanum og er hann hér að kynna sér þennan veiðiskap en mér skilst að hann sé að læra fiskeldi. Mér er sagt að hann sé frá Litháen. Hann er alveg aukamaður og það er bara fínt.

Túrinn var frekar leiðinlegur veðurfarslega séð en aflinn þokkalegur. Eins og hægt er að tala um þegar verður að spara kvótann þá er maður nokkuð sáttur með þetta sem var 204 kör og megnið þorskur.  Nokkuð var einnig af ýsu. Þetta voru líka bara fjórar lagnir og túrinn styttur um einn dag.  Við vorum á þvælingi á flákanum og suður í Kolluálinn með síðustu lögnina. Eitthvað af drasli var að þvælast í skrúfuna hjá okkur og var það að einhverju leiti til að tefja okkur á heimstíminu. Komum við því ekki í land fyrr en um kl 9.30 um morguninn. Þá var nú skemmtilegt veður eða hitt þó. Hvasst og úrhellisrigning. Við strumparnir sem fórum í endana vorum þokkalega sjóbúnir nema Mikael hann var bara léttklæddur og það var ekki þurr þráður á honum þegar lokið var bindingnum. Svo skemmtilega vildi til að það stytti upp nánast samtímis verkalokum þarna. Samt hélst nú vindsperringurinn. Sævar kom til að sækja okkur Benna vegna þess að Bogga var annað að gera. Eftir að heim var komið þá var ekki mikið hægt að gera. Veðrið hundleiðinlegt og versnaði þegar leið á daginn og  fór ekki að lægja fyrr en undir miðnætti. Ég tók mig til og þreif Skodann og bónaði hann. Það var þarft handtak og mikill munur að geta verið inni við þetta. Svo var bara restinni af inniverunni eytt í að letingjast.

Ég bið lesendur að fyrirgefa það að þetta kemur frekar seint inn. Annað hvort er um að kenna leti eða annríki. Ég þakka þeim sem lesa þetta langt í bullinu mínu Góðar stundir.

02.02.2012 01:05

Næstum því lögreglumaður

26.1.2012 20:41

4. túr

Þetta var svona þokkaleg innivera. Það snjóaði allmikið og gerði svo leiðinda færð þegar hvessti í þetta og fór að skafa. Ég fór að hafa af því áhyggjur að það myndi verða snjóavetur þannig að ég fjárfesti í nýjum dekkjum á Hondu til að hún væri til í slaginn annars ætlaði ég að spara mér það. Gert er ráð fyrir þíðviðri um helgina og þá koma svellin þannig að það er rétt að vera við öllu búinn. Reykjanesbrautin var ófær í morgun vegna snjóa en opnuð að ég held fyrir hádegi. Svo var skafrenningur þar þegar við fórum til Grindavíkur í dag.  En samt ekki farin að spillast færð. Við sturlungar fórum út kl 17.00 og stefna sett á Jökultunguna núna þar er alla vega ekki mikið um ýsu að ég held. Veður þokkalegt norðan kaldi þegar farið var en bjart og fallegt veður.

31.1.2012 13:19

Fyrsti dagurinn í þessum túr var hreint skelfilegur. Veltingurinn var meiri en við eigum að venjast hér. Dregið var með vindinn á hlið alla lögnina. Þetta var heldur skárra á þeim lögnum sem eftir komu en þó var að gera á okkur vindsperring nokkurn en þó með hléum. Við tókum þrjár lagnir þarna og svo var kippt í símasamband. Aflinn var nokkuð góður þarna úti en heldur lakari þar sem við vorum í gær. En það var á Búrbankanum. Eitthvað færðum við okkur í nótt þannig að það er ögn lengra heim en var í gær. Eitthvað erum við búnir að slíta í túrnum en slógum met í því í morgun en þá slitum við og slitum svo endann sem átti að draga niður þannig að ekki var um annað að ræða en dusta rykið af slæðunni og dýfa henni niður. Þetta urðu tvær dýfur því að í fyrri dýfunni fengum við eitthvert draugadrasl. Svo kom línan og þegar við vorum að brasa við hana þá var ég svo heppinn að fá krók í puttann en það var sem betur fer bara smá rispa eða kannski aðeins meira en ekkert stórslys.

1.2.2012 12:23

Þetta bras um morguninn var eina brasið en það var að vísu ekki alveg búið með því að slæða þetta því að endinn sem við slepptum niður hafði af einhverjum ástæðum orðið viðskila við baujuna sem á hann fór þannig að þeir slæddu hann til að spara sér kippinn í næstu bauju. Það tók mun minni tíma heldur en að keyra í næsta milliból. Þessar kjarnaslæður sem komnar eru í dag eru hreinustu töfratæki Það er annað en þetta keðjurusl sem var notað hér áður. En það voru fimm á milli. Aflinn var ekki neitt til að hrópa húrra yfir. Þetta var alveg ótrúlega blettótt og rokkaði aflinn á rekka frá  5 fiskum upp í rúmlega 200. Blandaður afli en mest þorskur, ýsa og langa. Búið að draga síðustu lögn um hálf tvö. Og í landi kl sex í morgun.  Veður var gott í landi og var það vel enda ákvað ég að nú væru jólin loksins búin og tók niður seríurnar sem úti voru en það hefur aðeins tafist hjá mér vegna ófærðar á þaki og lóð. En nú er allt orðið autt eða þar um bil og bara örlítill snjór eftir á minni lóð. Það er í rabbabara beðinu. Seríurnar eru komnar í naust og verða þar til næstu jóla og dekkin undan Hondu líka komin á dekkja loftið í skúrnum. Ég keypti dekk undir hondu í síðustu inniveru og þá fór snjórinn. Ég hefði betur fjárfest fyrr þá hefði kannski ekki komið neinn snjór. Ég tók til í skúrnum í dag en það er víst óþrjótandi verkefni og alltaf hægt að finna sér eitthvað til dundurs þar. Tiltektin fer nú að mestu þannig fram að maður flytur hluti úr stað og finnur þeim nýjan og þá virðist vera snyrtilegra hjá manni eða alla vega öðru vísi en það var áður. Ég læt þessum pistli lokið að sinni. Þjóðmálaumræðunni  vil eg ekki gera skil núna en þar er margt sem angrar hugann. Fréttir eru alltaf jafn yndislega skrifaðar og er það vel að hafa þær læsilegar. Enda fréttaritarar með menntun í faginu og kunna að haga orðum þannig að skemmtun sé að. Samanber fréttina af manninum sem ók á næstum því lögreglumann. Ég var svo smásálarlegur að ég var að velta fyrir mér hversu mikið manninn vantaði til að vera lögreglumaður en ekki bara næstum því. Jæja þetta er nóg bullað að sinni. Góðar stundir lesendur góðir.




Þetta eru gamlar myndir en því miður á ég ekki neinar nýjar sem gaman er að setja hér . kannski koma þær einhvarn tíma.
  • 1