15.05.2012 00:54

17. og 18. túr á Sturlu.

4.5.2012 12:57

Fórum út kl 23.00 á 1. Maí. Tíu tíma stím framundan  svo við tókum út beitu þegar búið var að sleppa. Einhverju var bætt við af færum þar sem nú átti að reyna við blálönguna. Við græjuðum tíu ný færi á því sem eftir var af vaktinni  í blíðskaparveðri. Byrjað var að leggja um hálf tíu um morguninn. Þegar byrjað var að brjóta beituna kom í ljós að síldin sem við fengum um borð reyndist flökuð og því ekki vel góð til beitningar. Þetta hafði í för með sér aukna vinnu fyrir mig þar sem þurfti að taka út makríl til að þíða upp  í stað síldarinnar. Svo var ég líka að vinna í færum því það þurfti svo mörg færi á þessa stubba. En við áttum færi niðri sem þurfti að koma upp og splæsa sumt af þeim. Fyrri stubburinn var 14 rekkar með tveimur millibólum og fimm færa dýpi. Seinni stubburinn var 13 rekkar  með tveimur millibólum og 6 færa dýpi. Aflinn var nú ekki til að hrópa húrra yfir því það var frekar lítið á þetta framan af á grynnri stubbinn en hann var svo lagður aftur áður en hinn var dreginn Stubburinn sem var dýpra var enn lakari og voru bara nokkrir fiskar á hann. Þá var ákveðið að leggja hann ekki aftur en draga allt og kippa eitthvað annað. Mér skildist að Skerjadýpið hefði orðið fyrir valinu að þessu sinni 18 kör höfðum við upp úr þessu hérna. Vonandi verður það betra framundan. Jú ekki bar á öðru en það væri skárra en þó ekki mikið. Eitthvað meira af keilu var þarna og var það í lagi en sú bláa var ekkert mikið að sýna sig. Þó var þetta nokkuð blettótt. Aflinn endaði í um 80 körum og er ekki hægt að segja að það hafi verið ásættanlegt eftir allan þennan tíma. Maður var kominn með rasssæri af aflabrestinum. Þó var ég að reyna að finna mér eitthvað nytsamt að gera. Þrífa og lagfæra  eitt og annað sem mér fannst að fara mætti betur. Komum í land um hálf sjö á þriðjudagsmorgni 8. Maí

18. túr byrjaði svo kl 17 þann níunda og læt ég hann fylgja með hér til að rétta mig af þar sem ég er í raun túr á eftir með skrifin. Með í túrnum var Ragnar eftirlitsmaður frá fiskistofu og farþegi í starfskynningu  Haukur að nafni Við skröltum núna suður í grindavíkurdýpi og byrjunin var skárri en í túrnum áður en þrátt fyrir bjartsýni okkar um að þetta væri að lagast þá brást það. Nú var ekki stubbað heldur lagðir allir rekkarnir í einu og dregið allt. Við tókum þarna  tvær lagnir á dýpinu en grynnkuðum síðan á okkur þar sem spáin var ekki góð fyrir þetta mikið dýpi. Aflinn á grynnslunum var keila en þó heldur löngusleginn en lítið um blálöngu. Löngukvótinn búinn þannig að þetta var lítt æskilegur afli. Veðrið hélst gott þessa lögn en spáin var slæm. Kippt var úr þessu á Reykjanesgrunn og þar hvessti heldur betur á okkur. Gerði bara vetrarstorm. Þar var meiningin að veiða keilu en eitthvað slæddist nú með af þorski. Þorskur er bannvara þar sem kvótastaðan býður ekki upp á meiri veiði þeirrar tegundar og þar sem veðrinu var spáð áfram var ákveðið að stytta túrinn og fara í land. Í landi kl 6.45 á mánudeginum 14. Maí.  Aflinn var um hundrað kör blandaður afli. Læt skrifum lokið að sinni Góðar stundir.

09.05.2012 00:39

16. túr á Sturlu

Fórum út kl 19.00 miðvikudaginn 25. apríl

Stímið var stutt því meiningin var að klára þorskinn í þessum túr og því lá beinast við að fara á sömu slóðir og í túrnum áður þar sem var vaðandi fiskur. Við náðum þessu í þrem lögnum og þá var bara farið heim og vorum við í landi á sunnudagsmorgni kl 06.20. það var ágætt að fá svona smá frí aukalega. Ekki get ég nú hælt mér af því að hafa nýtt mér fríið til framkvæmda heima fyrir en setti þó niður 96 kartöflur í garðholuna. Ekki geri ég ráð fyrir að þær komi neitt snemma upp ef ekki fer að hlýna fljótlega þar sem hitastigið þvælist sitt hvoru megin við núllið. Gróðurinn er líka allur að vakna í garðinum en grasmaðkurinn er ekki farinn af stað og köngulærnar eru ekki orðnar mjög aðsópsmiklar ennþá. Þó er ég nú að finna einn og einn þráð strjúkast við trýnið þegar ég er í vettvangskönnunum.  Það eru blómstrandi stjúpur út um allt þannig að það þarf ekki að eyða miklum fjármunum í skrautjurtir í garðinn þetta sumarið. Þó geri ég nú ráð fyrir að við kaupum eitthvað til að fegra sköllótta bletti. Ákveðið andleysi veldur því að skrifin verða ekki lengri að sinni góðar stundir.

30.04.2012 02:18

Fimmtándi túr á Sturlu.

Farið út kl 17.00 á miðvikudeginum  18. Apríl.

Hann var sérstakur að því leiti að í miðjum túr opnuðust svæði sem lokuð voru vegna fæðingarorlofs fiskjarins. Með þetta í huga var farið frekar stutt þannig að þegar svæðið opnaði þá væri hægt að kippa þangað með stuttum fyrirvara. Byrjuðum því á skerjunum með tvær lagnir og afli var frekar tregur svo var kippt  upp í selvoginn og beðið þar þess að mætti byrja að leggja sem var kl nákvæmlega 10.00 á laugardeginum. Búið var að draga snemma eða fljótlega upp úr miðnætti þannig að það var nógur tími til að koma sér á staðinn. Við vorum snemma og svo var bara beðið klukkunnar. Þetta er ekki stórt svæði þannig að það var ekki pláss fyrir marga þarna. Það voru tveir litlir bátar þarna sem byrjuðu með okkur. Aflinn hjá okkur var bara nokkuð góður þarna. Þorskur í meirihluta og ýsa með, en minna af öðrum tegundum. Þarna náðum við þessum þorskskammti okkar sem var 40 tonn  það hratt að lagðir voru bara tíu rekkar í síðustu lögninni og vorum við komnir í land um kvöldmatarleytið á mánudagskvöld. Það var bara fínt. Svo var farið út á miðvikudag kl. 19.00

Þar sem þessi færsla er svo seint á ferðinni þá læt ég vera að vera með einhverjar hugleiðingar um landsmálin með. Þó má ég til með að óska stjórnvöldum til hamingju með það að hafa sóað þessum milljónatugum í landsdómsmálið. Líklega hefði þessum peningum verið betur varið á sínum tíma í að skoða viðskiptafléttur baugsveldisins, en eins og menn muna kannski enn þá eyddi Ingibjörg Sólrún heilum framboðsfundi í Borgarnesi í hatursáróður gegn Davíð og öðrum sem vildu skoða þetta stórveldi ofan í kjölinn. Hún leit hins vegar þannig á að þessar athuganir væru byggðar á meintu hatri Davíðs á Jóni Ásgeiri og hans kompaníi. Þrátt fyrir þessa oftrú á útrásarvíkingunum kom téð Ingibjörg hvítskúruð út úr stjórnarsamstarfinu við sjálfstæðisflokkinn eftir hrunið sem þessir sömu útrásarvíkingar voru óbeint kannski valdir að með óábyrgum fjárfestingum sínum vegna þess að hún vissi ekki neitt hvað var að gerast á stjórnarheimilinu. Hún virðist hafa sofnað í upphafi stjórnarsamstarfsins og ekki vaknað aftur fyrr en hún var komin úr því aftur. Líklega hefur Borgarnesfundurinn gengið svona nærri henni.

Læt þessu lokið að sinni góðar stundir.

  

18.04.2012 01:08

Túr 14. Sturla + aðrar hugleiðingar.

10.4.2012 21:47

14. túrinn hófst á smáveseni, en við mættum til skips kl 17.00 það kom í ljós þegar fara átti að taka út beitu að frostið hafði farið af klefanum og því var nokkuð af beitunni orðið þítt. Síldin er betur klædd þannig að það var ekki svo mikið af henni ónýtt en smokkurinn var allur ónýtur. Hann þolir ekki að þiðna því þá verður hann bleikur og alls ekki það lostæti sem hann á að vera fiskinum. Eitthvað fór held ég í land af honum en restinni hentum við í hafið  á útleiðinni. Fengum nýjan áður en haldið var út. Veður var gott í dag heima og það var það líka þegar við fórum út þó kom einhver rigningar úði á okkur á leiðinni út á meðan við vorum að græja fram á. Það stóð til að hífa smokkinn upp á efra dekk en við létum það vera og handlönguðum þetta aftur að dráttarlúgu og hentum því þar út. Stefnan var á tunguna og nú er bara að sjá hvernig fiskurinn tekur svona eftir páskahlé. Svo fer þorskurinn að fá fæðingarorlof og þá má ekki veiða hvar sem er. Páskafríið var harla gott að öðru leiti en því að það var frekar blautt framan af eða öllu heldur um miðbikið. Því var lítið unnið í garðinum en svolítið þó. Þegar veðrið lagaðist þá kláraði ég grindverkið kring um rabbabarann og svo var dundað aðeins í tiltekt. Ég tók til í geymslunni og gerði hana þannig að það væri gott að komast að öllu þar og nóg pláss fyrir það sem þar á að vera. Þarna er aðallega mold og sandur og hellur sem þarf að finna pláss fyrir. Það er nú þegar orðið ljóst að kirkjan sem ég er að vinna að verður ekki sett upp í sumar. Verkið er býsna drjúgt þó það virðist kannski ekki svo við fyrstu athugun. Ég vona nú samt að mér endist aldur til að klára þetta verk. Kannski hentar mér ekki svona fínsmíði. Ég er svo smeykur um að ég hreinlega hafi ekki þolinmæði til að standa í svona smávinnu.  

14.4.2012 13:13

Túrinn hálfnaður og komin 172 kör þannig að hann getur farið vel yfir 300 kör þar sem eftir eru þrjár lagnir. Veður er búið að vera þokkalegt aðeins kaldi stundum en engin bræla sem kalla má því nafni. Fiskurinn sem aflast er mest ýsa langa keila og þorskur nánast í þessari röð hvað magnið snertir. Vaktin er bara róleg og afslöppuð þar sem friðarspillirinn er í fríi. Allir hjálpast að og vinnan gengur hávaðalaust sem er best fyrir alla enda er almann ánægja með þetta svona.

18.4.2012 00:05

Komum í land í morgun um sexleitið með um 280 kör af reglulega vel blönduðum afla. Lítið af þorski en þó nokkur tonn. Stefnan var að veiða ýsu en eins og venja er til þá er erfitt að veiða aðeins eina tegund og með þessari ýsu fylgdi allnokkuð af keilu og löngu. Það var í lagi því það þarf að veiða þessar tegundir líka. Eins og sjá má af karatölunni þá var minni afli á seinni hlutanum og er það ekkert óalgengt. Það kom okkur á óvart hversu gott veður var þegar við komum í land. Glampandi sól og heiðskírt og nánast logn. Þetta ágætisveður hélst allan daginn og nýtti ég það eins og ég gat með því að dvelja ekki mikið inni. Fór með annan bílinn í dekkjaskipti en ákvað að bíða aðeins með hinn. Fer kannski með hann næst. Svo var ég að þvælast á bílasölum að skoða en ekki varð nú af neinum fjárfestingum því skotsilfur skortir í þess háttar kaupskap. Alltaf er þó gaman að hafa einhverja draumsýn. Þessir bílar sem við eigum hér duga nokkur ár í viðbót með góðu atlæti og þokkalegri meðferð. Garðurinn fékk frí að mestu leiti enda er ekki mikið eftir að gera þar annað en skreyta hann þegar komið er aðeins lengra fram á vorið. Eitthvað þarf að losa um af jurtum og horfi ég þar til hávaxnari tegunda sem mig langar að losa mig við. Þetta eru hvort er eð er ekki neitt sérstakar steinhæðarplöntur og verða fljótt ljótar svo eru þær búnar að blandast og komin  sóley innan um og það er erfitt að uppræta svona laumujurtir sem eru hreint engir aufúsugestir. Þessar jurtir eru líka búnar að sá sér um allan garð þannig að ég tel best að losa sig við kvikindin og reyna að reyta upp þessa afkomendur þar sem þeir eru ekki æskilegir út um allt. Mesti höfuðverkurinn núna þessa stundina eru tvö kapalkefli sem ég er með. Mig skortir hugmyndir til nýtingar þeirra til skrauts eða einhvers hlutverks.  En andinn hlýtur að koma yfir mig með hækkandi sól.

Læt  þessu lokið að sinni góðar stundir.

Var að þvælast með myndavélina í morgun.

Þessi er oft hér í Hafnarfirði. Hét Ottar Birting minnir mig og svo Dalborg og nú Otto.


05.04.2012 02:57

13. túr á Sturlu og hugleiðingar um störf ríkisstjórnar.

13.túrinn hafinn og kl 19.00.Þann 28 mars.

Stefnan í kolluálinn og nú skulu kallarnir reyna við þorskinn.Þorskveiði hefur verið dræm síðustu túra og því rennum við blint í sjóinn með afla í þessum túr en vonum hið besta. Loðnan hefur verið að hrella okkur með því að vera til og fæða fyrir fiskinn. Ástæða þess að ég hleyp yfir einn túr er að þá var ég í fríi og bý því ekki að vitneskju um gang hans. Fríið var til komið vegna þess að ég þurfti að fara í jarðarför tengdaföður míns  Rúnars J Guðmundssonar og í sama fríinu náði ég einnig að fara í jarðarför föðurbróður míns Kristjáns Helga Guðmundssonar bónda að Minna Núpi í Gnúpverjahreppi þannig að það má segja að þetta frí hafi nýst mér þokkalega. Svo var svona dúllerí heima fyrir eins og eðlilegt er. Byrjaði tiltekt í garðinum en svo var veðrið ekkert sérstakt fyrir útivinnu. Eitthvað dundaði ég í skúrnum. Renndi fimm staurakúlur og græjaði þær til ásetningar. Vann svolítið í tómstundavinnunni. Sá verkhluti gengur frekar hægt en gengur þó. Er núna að velta fyrir mér hvað ég á að gera við trjá stubbana sem ég sagaði af í brekkunni. Hef ekki komið mér niður á nógu góðar lausnir varðandi þá. Hugmyndir eru samt nokkrar en þeim þarf að hrinda  í framkvæmd. Ekki er hægt að setja fuglahús á stubbana því það er svo mikið af köttum hér þannig að það er út úr myndinni. En mikið væri það nú skemmtileg lausn. Erfitt er að setja á þetta blómapotta því þetta er svo mikið veðravíti. Helst er ég að leiða hugann að einhverjum skúlptúrum en þetta er allt í skoðun eins og er.

Já þessi túr stóðst ekki væntingar en var samt ekkert svo slakur í ljósi kvótastöðunnar. Leit illa út í byrjun og lagaðist lítið þegar á leið. Þetta voru bara fjórar lagnir og jú það var nokkur þorskur í þessu hjá okkur en ekki eins og við hefðum óskað. Að vísu kom tilkynning frá útgerðinni um að við mættum ekki koma með meira en 40 tonn af þorski þannig að það var kannski eins gott að við lentum ekki í moki. Veður var bara ágætt allan túrinn og er það óvenjulegt. Bara gola eða kaldi og varla hreyfing að marki. Túrinn endaði í 165 körum sem er nú ekki mikið þegar maður er að hugsa um afraksturinn en það verður líka að hugsa um að aflahlutdeildin dugi eitthvað fram á sumarið þannig að sumarfríið verði ekki of langt. Annars virðist mér Skallagrímur stefna að því að koma útgerðinni í þá stöðu að þeir sjái sér ekki annað fært en hætta áður en þeir fara á hausinn þannig að framtíðin er óviss. Það verður örugglega mikil gleði hjá fólkinu í landinu þegar kvótinn er orðinn þjóðareign og flotanum haldið gangandi á fallandi gengi krónunnar svo að hann fari ekki á hausinn því það má ekki þá skilar hann engu í ríkissjóð. Fallandi gengi þýðir hækkandi lán og það er líklega það sem fólkið vill sem kallar á fiskinn í þjóðareign sem hann er reyndar í mínum skilningi. Það er oft tíundað hver hagnaður útgerða er af hinum ýmsu veiðum en mun sjaldnar talað um hverju veiðarnar skiluðu í þjóðarbúið. Það er ekkert sem fréttamönnum finnst skipta máli enda virðast þeir þrífast best á því að búa til leiðindi með skrifum sínum því það er mun líklegra til að vekja umræðu að skrifa um hvað útgerðarmenn séu miklir skúrkar og eiginhagsmunaseggir heldur en sýna fram á hvað hver útgerð leggur til mörg bílverð og annan innfluttan varning í formi gjaldeyris sem útgerðin skapar með sinni starfsemi.

Ég gæti skrifað svo miklu miklu meira af mínum hugðarefnum en ætla að láta þessu lokið að sinni. Myndir hafa ekki verið teknar nýlega þannig að það verður að bíða svo er líka lítill tími en það er nú önnur saga.

Góðar stundir þeim sem náðu svona langt í lestrinum.

21.03.2012 00:37

11. túr á Sturlu og orkumál

14.03.2012 Byrjaði ellefti túr ársins kl 20.00

Þar sem farið var stutt þá skrifaði ég ekkert á útleiðinni. Stefnan var tekin í Grindavíkurdýpi tæpir tveir tímar út. Byrjað var að leggja fyrir kl 22.00 og það var ágætt því að veðrið var alveg brilljant. Aflinn var nú bara eins og áður blandaður og heldur minni en búist var við miðað við útlit. En þannig er að fiskurinn er núna úttroðinn af loðnu og því ekkert óeðlilegt að hann sé ekki ginnkeyptur fyrir því sem við bjóðum upp á. Samt er þetta bragðarefur af fínustu gerð skorinn þvers og kruss þannig að útlitið eitt og sér ætti að vera alveg ómótstæðilegt. Þrátt fyrir þetta lætur árangurinn á sér standa. Veður hélst gott fyrstu þrjá dagana en tveir síðustu voru leiðinlegir reyndar var sá síðasti virkilega leiðinlegur. Mér þykir ekkert verra að vera lestarmaður þegar veður er svona vont því að þá er frekar leiðinlegt á rúllu að vera. Víst er líka leiðnlegt að vera í lestinni þegar veltur en það er yfirleitt minni ágjöf þar. Túrinn þessi endaði í 233 körum og var ekki nóg af þorski en það er huggun harmi gegn að það saxaðist minna á kvótann en reiknað var með. Þetta er orðið frekar þunnt það sem eftir lifir kvótans og nokkrir túrar eftir enn til loka. Nú er ég í fríi næsta túr og er það af brýnni nauðsyn. Ég vona að kallarnir komist af án mín þessa stund og njóti þess.

Nú eru uppi hugmyndir um að nýta megi sorp til eldsneytisframleiðslu og tilraunir hafa leitt í ljós að það er hægt. Þegar sagt er frá þessum framleiðsluaðferðum og því magni sem framleiða má þá er aldrei talað um orkuna sem fer í að  framleiða líterinn af metanóli. Hins vegar líst mér mun betur á það ef hægt verður að framleiða fljótandi eldsneyti á bíla í stað þessa hefbundna heldur en þetta metan eða þá að keyra á rafmagni. Metan útheimtir mikla öfluga kúta því það er bara gas. Kútarnir eru þungir og svo taka þeir allnokkurt pláss sem yfirleitt er nú ekkert of mikið  fyrir í bílunum. Þyngdaraukningin af kútunum veldur meiri eldsneytiseyðslu. Eins er þetta með rafbílana þeir eru með þunga mótora plús að þeir eru fullir af rafgeymum sem eru þó aldrei nógu stórir en ótrúlega þungir þá er nú lítið rými eftir fyrir farangur. Þá kem ég að þessari óumflýjanlegu orkueyðslu sem fer aukalega bara í að flytja umbúðirnar um orkuna. Skyldi það hafa verið reiknað út hversu stórt hlutfall þessara tegunda orku sem eldsneytis á bíla fer í að flytja umbúðirnar.

Áfram um orkumál. Í fyrra kom einhver snillingur með nýtt orkusparnaðarapparat á markaðinn. Þetta var útbúnaður sem framleiddi vetni með rafgreiningu úr vatni og leitt var inn á loftinntak vélarinnar. Þetta var talið auka afl vélarinnar og um leið minnka eyðsluna. Hönnunin var góð en það gleymdist alveg að gera ráð fyrir aukinni eyðslu vegna rafgreiningarinnar. Þannig var það að það sem sparaðist við þessa vetnisinnspýtingu eyddist við að framleiða vetnið. Gaman væri að vita hversu margir létu glepjast á þessu. Þetta var nefnilega ekkert ódýr búnaður.

Alveg er það merkilegt hvað margt leitar á hugann og veldur heilabrotum. Fyrir um það bil 40 árum var ég að vinna í saltfiskverkun í Keflavík. Ég hafði oftast það hlutverk að salta fiskinn og var yfirleitt einn við það. Mér þótti erfitt að moka saltinu og velti því fyrir mér hvernig best væri að hanna söltunargræju til að sleppa við moksturinn. Þá var allt saltað í stæður á gólf og var ég í huganum búinn að hanna brautir um allt loftið sem flytti búnað til að dreifa saltinu í hæfilegu magni á fiskinn eftir því sem hann var lagður niður. Nú er svona búnaður kominn en hann er ekki á brautum vegna þess að nú eru komin kör sem saltað er í þannig að mín hönnun hefði fljótt orðið úrelt.

Jæja nú ætla ég að láta þessum hugleiðingum lokið að sinni. Þeir lesendur sem þolinmæði hafa haft til að komast til enda á þessari vitleysu eiga þakkir skildar fyrir en tek fram að ég geri þetta að mestu fyrir sjálfan mig því ég hef af því nokkra ánægju að skrifa. Góðar stundir.


Þarna er kallinn með tveim höfðingjum við sjávarsíðuna 2009

Þessi hafa nú malað gull á árum áður bæði skipið og verksmiðjan en tímans tönn er óvægin og nagar sleitulaust

13.03.2012 21:06

Túr 10 á Sturlu.

7.3.2012 22:05

10. túr.

Já hann er hafinn sá tíundi á árinu og það er ljóst að það er ekki komið vor ennþá. Það var bara vetrarlegt um að litast í landi þegar farið var. Við lögðum af stað um kl 20 og nú er stefnan á jökuldýpið held ég. Það er norðvestan skælingur og frekar brælulegt. Þar sem svona viðrar þá hægir það verulega á bátnum svo að við verðum ekki komnir fyrr en eftir miðnætti á staðinn.

13.3.2012 12:48

Það gekk eftir svo að við kvöldvaktarmenn þurftum ekki einu sinni að byrja lögnina. Veðrið versnaði á leiðinni og var orðið bara verulega slæmt þegar komið var út. Spáin slæm og reyndar svo slæm að lögð var full lögn eða 30 rekkar en svo dregnir 15 og þeir lagðir aftur. Með þessu fyrirkomulagi náðum við því að leggja á lensi og draga upp í veðrið.  Einhverjar skvettur vorum við að fá og meðal þess sem gerðist var að skvetta kom á stjórnborðshliðina og reykbauja sem var í festingu utan á brúnni rétt við dyrnar losnaði og fór í gang og puðraði appelsínugulum reyk. Biggi stóð í ströngu við að koma einhverju skikk á kvikindið og komst ekki hjá því að eitthvað af þessu púðri færi framan í hann í bland við pusið sem var. Hann hengdi þetta út fyrir lunningu og þar fékk það að blása til loka sem voru sirka 15 mínútur.Svona bauja er líka með tveimur ljósum og þau lifðu nú eitthvað lengur.

  Aflinn hjá okkur var svona upp og ofan. Þokkaleg blanda af þessum helstu tegundum. Hefði þó ekki verið verra að þorskurinn hefði sýnt krókunum okkar meiri áhuga en það verður víst ekki á allt kosið. Þetta var haft svona og hagað þannig að við næðum einni heilli lögn í restina eftir að hafa þá dregið allt og kippt á Eldeyjarbankann. Þar byrjuðum við lögn kl 23.20 á sunnudagskvöldið og var þá meiningin að bæta úr þessum þorskskorti í aflanum en þar sem loðnan hefur verið að vaða um svæðið þá var fiskurinn ekkert sérlega áhugasamur. Eðlilega hafði þetta  bein áhrif á aflamagnið hjá okkur og lítið við því að gera. Veðrið var nú orðið skaplegra og var það ljós punktur í tilverunni því ekki voru aflabrögðin áhrifavaldur í þá átt.það er nú einhvern veginn svo að maður er fljótur að gleyma leiðindunum sem fylgja leiðinlegu veðri. Vel gekk svo að draga þar til við tókum við á kvöldvaktinni á mánudag. Þá náðum við að slíta þrisvar og það var ávísun á slæðuna. Vel gekk að slæða en í þetta fór vissulega mikill tími eða sem svarar um þrír og hálfur miðað við áætlun á vaktaskiptunum. Komum í land um kl 06.45 og þá var bara þokkalegasta veður. Sævar sótti okkur Benna til Grindavíkur. En þá að öðrum málum.

Vitnaleiðslur hafa staðið yfir í landsdómi sem virðast vera merkilegar og ýmislegt kemur fram sem ekki hefur komið fram áður. Ingibjörg Sólrún lét að því liggja að fyrir hrunið hefði Davíð verið að gagnrýna bankastjórana og hún hefði ekki séð ástæðu til að taka mark á því af því að þetta var Davíð en ekki einhver annar. Ekki gat ég nú hjá því komist að það rifjaðist upp fyrir mér framboðsfundurinn frægi í Borgarnesi þar sem framboðsræða téðrar Ingibjargar snerist um að rægja Davíð og hossa baugsveldinu. Ekki get ég ímyndað mér annað en fleiri muni. Fólk gerir ýmislegt til eigin upphafningar og því er upplagt að skella skuldinni á Seðlabankann = Davíð. Jæja ég lít nú svo á að nóg sé ritað að sinni og læt bullinu lokið. Góðar stundir.

Sjómennskan er ekkert grín og Viðar er örugglega sammála því.

Þær geta nú orðið nokkuð stórar löngurnar og þarna er kallinn með eina í stærri kantinum.


07.03.2012 01:49

9. túr á Sturlu

29.2.2012 19:00

9. túr.

Fórum út kl 17.00 fullir bjartsýni á túrinn. Sigurbjörn skipper  er í fríi  og því er Sigurbjörn stýrimaður með bátinn þennan túr og Birgir stýrimaður. Veður var gott í dag en um fjögurleitið fór að snjóa og var það býsna drjúg ofankoma. Við upplifðum það að það var bara allt í einu kominn vetur eins og hendi væri veifað. Elísa fór akandi í skólann í morgun á Skóda og því urðum við að fara á Hondu til Grindavíkur. Einhver skælingur er nú en ég held að það sé enginn stormur. Jæja þá er best að klára þennan túr. Þannig er að ég er lítið í tölvu þegar ég er úti á sjó og stafar það af því að ég legg meiri áherslu á það að lesa því að þá er ég að afla mér einhvers fróðleiks sem er alltaf gott. Er núna að lesa um Thorsarana svokölluðu. Það er Thor Jensen og hans afkomendur.  Á fyrri hluta síðustu aldar. En nú aflabrögðin. Komið hefur fram að Sjössi var skipstjóri þennan túrinn við lögðum í kolluálinn og fengum nokkuð af þorski en skipun  kom frá útgerðinni um að við mættum ekki koma með nema 30 tonn af þorski en við máttum hins vegar veiða 10 tonn af ýsu. Þetta hafði þær afleiðingar að kippt var suður úr álnum á slóðir þar sem líklegt mátti telja að eitthvað fengist af ýsu og það gekk eftir þar var ágæt ýsa en kannski ekki neitt mok. Eitthvað af þorski slæddist með í þessu en það var ekki mikið. Heldur meira fór fyrir löngu og keilu þarna og eru það alltaf frekar óvinsælar tegundir. Þarna tókum við tvær lagnir en svo var kippt enn sunnar og var þá ætlunin að veiða þennan þorskskammt sem reyndar var búið að auka um 5 tonn. Þar var lögð full lögn en svo örfáir rekkar til viðbótar og mun veðurspá hafa ráðið nokkru þar um en spáð var suðvestan stormi um það leyti sem við hefðum átt að koma í land þannig að hann stytti túrinn um nokkra klukkutíma til að þurfa ekki að fara í Njarðvík sem er svona neyðarhöfn þegar allt er ófært. Við komum í land um kl 16.30 á mánudaginn og þá var allnokkuð byrjað að hvessa en hann var frekar  austan stæður þannig að það var ekkert brim í innsiglingunni en það átti örugglega eftir að breytast með breyttri vindátt. Þetta er bara lengsta frí sem ég hef haft frá því að við byrjuðum eftir áramótin. Vel ásættanlegt en ég er hræddur um að við höfum ekki náð því að veiða það sem við máttum af þorski. Það kannski gerir ekki svo mikið til því að kvótinn er ekki svo mikill að við náum honum þó að þetta hafi klikkað hjá okkur. Líklega erum við með minna en reiknað var með því að það er alltaf verið að bögga okkur með að við setjum of mikið í körin þannig að við vorum að setja minna í þau núna og nú er bara að sjá hvernig til tekst. Ég læt þessu þá lokið að sinni. Góðar stundir.

Ég mátti til að setja þarna inn eina mynd. Það er svo langt síðan ég hef sett inn mynd hér. þetta er nú svona vinnukaldi og við á leið í Grindavík sem þarna sést.


29.02.2012 01:33

Túr 8 á Sturlu.

 

26.2.2012 13:32

8. túr.

Hann byrjaði bara svipað og venjulega á því að fara út. Veður var gott. Eiginlega svo gott að maður hefði helst viljað vera í fríi en það er nú ekki í boði þegar mann langar. Það er allt háð ákveðnum leyfum og með nokkrum fyrirvara. Við áttum að fara kl 17.00 en einhver bið var á því að sleppt væri vegna þess að verið var að hlynna að einhverjum tækjum í brú sem tafði þá brottför um sirka klukkustund. Nú var haldið í Kolluálinn. Komnir þangað um eittleitið og lagðir 29 rekkar sem skiluðu 70 körum af blöndu en þó var reyndar mest af þorski. Næsta lögn sem var líka 29 rekkar var aðeins lakari. Svo var farið að reyna við ýsuna sem hafði í för með sér minnkandi afla. Við erum alltaf bundnir af þessum aflatakmörkunum sem gerir það að  okkur er nauðsyn að hafa sem flestar tegundir í stað þess að veiða bara eina. Þar sem hægt gekk að draga þá var sleppt niður á annarri lögninni þegar eftir voru fjórir rekkar og lagðir 25 til að rétta af. Á þessar þrjár lagnir fengum við 169 kör. Við morgunvaktarmenn fengum að leggja í rúman klukkutíma. Ekki veit ég hvað dregið var mikið nú á morgunvaktinni en aflinn var 9 kör Veðrið var risjótt eins og venja er á þessum árstíma. Við héldum okkur við að reyna að fá sem minnst af þorski en hann slæðist alltaf með.  Reynt var við ýsu og við fengum eitthva af þeim eðalfiski svo var náttúrulega langa og keila til upfyllingar. Búið var að draga síðustu lögn um miðnætti á mánudagskvöld en það voru 24 rekkar. Ekki er ég nú með það hvað var á einstakar lagnir en aflinn í heild endaði í 256 körum. Við fengum fyrir þennan túr nýjar grindur til að standa á í aðgerðinni en gömlu grindurnar voru of mjóar þegar maður þarf að standa af sér velturnar á hlið. Ekki er enn búið að laga veiluna í blóðgunarkarinu þannig að það er enn nokkuð af fiski sem merst í því. Vonandi verður nú bráðlega ráðin á því bót. Við komum í land kl 07.30 í morgun og brottför er á morgun kl 17.00. Ég álpaðist á bókamarkað og fjölgaði í bókaskápnum um 9 bækur þannig að ég er sæmilega birgur fram á vorið því ekki er ég hraðlæs þannig að þetta endist nokkuð. Svalt úti núna þessa stundina og hálka. Sá saltbíl fara suður reykjanesbrautina áðan.  Læt þetta duga að sinni Góðar stundir.

22.02.2012 02:33

Túr sjö á Sturlu.

17.2.2012 13:12

7.  Túr.

Jæja enn á sjó og er að byrja að skrifa núna en við fórum út Þann 15. Kl 19.00. Stímið var frekar stutt þannig  að ég var ekki neitt að starta tölvunni þessa stund enda leiðinda veður. Grindavíkurdýpið varð fyrir valinu að þessu sinni og byrjuðum við að leggja um kl 20.45 þá var rok og rigning og bara virkilega leiðinlegt sjólag til viðbótar. Við þurftum að setja upp línu á einn rekka og var ég í því milli þess sem ég var að græja millibólin. Lagt var með 5 rekka milli bóla. Þeir slitu svo strákarnir þegar eftir var að leggja tæplega rekka þannig að þetta varð endalaust. Eitthvað var þetta látið liggja áður en byrjað var að draga en það hófst um kl 4.00. Það var svona góður vinnukaldi á okkur þarna eða um 24-25m/sek samkvæmt því sem kom fram hjá skipstjóranum á Brúarfossi sem lenti í bilun við aðalvél stutt frá Garðsskaga og var næstum farinn upp meðan viðgerð stóð yfir. Aflinn var nú ekkert mok eða 46 kör blandaður afli. Búið var að draga upp úr miðnætti og byrjað fljótlega að leggja aftur.

19.2.2012 13:41

Jæja þá styttist í túrnum bara eftir þessi lögn og ein enn. Aflinn orðinn 167 kör að sjálfsögðu blandaður afli eins og hefur verið og verður sjálfsagt það sem eftir er. Nokkuð hefur verið af lýsu hér á svæðinu og er það bara ágætisbúbót því stundum fæst þokkalegt verð fyrir þann ágæta fisk. Annars er þetta mest Þorskur og langa. Við gerðum smá breytingu í afturlestinni fyrir þennan túr þannig að nú eru öll lifrarkörin á gólfi og því rennur betur í þau. Svo þurfum við að minnka fiskmagnið í þessa lest til að þægilegt sé að koma frá sér gotunni. Þá verður þetta bara næstum því fullkomið. Komum í land um kl 5 í morgun og förum á morgun kl 17.00. aflinn um 260 kör þannig að við megum vel við una eða þannig. Læt þetta duga að sinni Góðar stundir.

15.02.2012 17:09

Túr 6 á Sturlu.

Fórum út kl 17.00 í dag og stefnan tekin á Kolluálinn að ég held. Veður nokkuð gott en að sjálfsögðu er ekki líklegt að það endist lengi.

14.2.2012 00:03

Kolluállinn var nú ekki byrjunarreiturinn heldur fórum við út á svokallaðan Wilson banka sem er eitthvað dýpra. Kann ekki að staðsetja hann svo nákvæmt sé. Þar fengum við allnokkuð af þorski í byrjun en svo dró  úr því þarna á fyrstu lögninni. Samt var ekki hægt að segja að það væri einhver ördeyða. Mér þykir líklegra að reynt hafi verið að veiða blandaðan afla  og þá er betra að gera það frá upphafi. Tvær fyrstu lagnirnar voru bestar en svo dró úr því og var lakast á síðustu lögnina. Þá vorum við þó reyndar að fá allnokkuð af vænni ýsu. Túrinn endaði síðan í 233 körum og nú er að sjá hvort það er mikið eða lítið í þorskkörunum. Ég var alla vega að reyna að hafa nóg í þeim. Þetta var ekki svo stór fiskur. Ég var lestarmaður núna. Ég er það yfirleitt ef við erum með alla vana. Kann því bara nokkuð vel. Það er tilbreyting en þó finnst mér tíminn lengur að líða í þessu heldur en þegar ég er í skiptikerfinu. Í morgun ætlaði ég að fara að taka til í beituklefanum þar sem lítið var að gera en ég var ekki nema rétt byrjaður á því þegar báturinn fór að velta allmikið. Þegar svo var komið þá var nú ekki hægt að vinna þar niðri af neinu viti. Veltingurinn hélst megnið af deginum þannig að klefinn var látinn vera.  Ég segi bara eins og Manni vélst. segir svo oft Þetta hleypur nú ekkert frá mér. Áætlaður komutími er kl 03.00 í Grindavík. Kom heim um fjögurleitið. Fékk far með Óla á jeppanum og því fékk Bogga að hvílast í þetta sinn. Það var svona hægur vindur þegar komið var í land og súldarvottur. Þessi innivera var nú öðrum lík að mestu ég geri þó alltaf eitthvað í hvert sinn sem ég er í landi. Í þetta skipti þreif ég og bónaði Honduna en það var nú aldeilis kominn tími á hana í bón. Líklega komið á annað ár síðan hún fékk slíka meðhöndlun. Svo var ég í dag að dúlla mér í skúrnum en forðaði mér þegar ég fann að framkvæmdaáhuginn var að rumska. Það er allt of snemmt að vekja hann svona um miðjan vetur. Til þess að sefa hann þá settist ég við tölvuna og það er alveg óbrigðult til að drepa niður allar slíkar hugrenningar.

Mér þykir hálfleiðinlegt hvað ég er lítið duglegur við myndatökur og að setja inn myndir en það verður bara svo að vera. Lesendum þakka ég lesturinn að sinni Góðar stundir.

08.02.2012 16:40

Túr 5 á Sturlu.

Jæja þá er nú fimmti túrinn byrjaður og Grindavíkin  kvaddi okkur með roki og rigningu kl 17.00 í dag. Ferðinni er heitið í Kolluálinn held ég. Við tókum eina björgunargallaæfingu eftir kvöldmatinn. Þetta var tímakapphlaup og náði ég því að vera í neðsta sæti og lít svo á að ég sé vel að því kominn. Það verður alltaf einhver að vera á botninum. Samkvæmt því hefur snerpu minni nokkuð hrakað og eru fyrir því ákveðnar ástæður sem ég tel ekki þörf á  að tíunda  hér. Alla vega er mjög gott að taka svona æfingar til að  kynnast göllunum og hvernig á að ganga frá þeim þannig að þeir virki eins og ætlast er til. Núna erum við með einhvern nema úr fisktækniskólanum og er hann hér að kynna sér þennan veiðiskap en mér skilst að hann sé að læra fiskeldi. Mér er sagt að hann sé frá Litháen. Hann er alveg aukamaður og það er bara fínt.

Túrinn var frekar leiðinlegur veðurfarslega séð en aflinn þokkalegur. Eins og hægt er að tala um þegar verður að spara kvótann þá er maður nokkuð sáttur með þetta sem var 204 kör og megnið þorskur.  Nokkuð var einnig af ýsu. Þetta voru líka bara fjórar lagnir og túrinn styttur um einn dag.  Við vorum á þvælingi á flákanum og suður í Kolluálinn með síðustu lögnina. Eitthvað af drasli var að þvælast í skrúfuna hjá okkur og var það að einhverju leiti til að tefja okkur á heimstíminu. Komum við því ekki í land fyrr en um kl 9.30 um morguninn. Þá var nú skemmtilegt veður eða hitt þó. Hvasst og úrhellisrigning. Við strumparnir sem fórum í endana vorum þokkalega sjóbúnir nema Mikael hann var bara léttklæddur og það var ekki þurr þráður á honum þegar lokið var bindingnum. Svo skemmtilega vildi til að það stytti upp nánast samtímis verkalokum þarna. Samt hélst nú vindsperringurinn. Sævar kom til að sækja okkur Benna vegna þess að Bogga var annað að gera. Eftir að heim var komið þá var ekki mikið hægt að gera. Veðrið hundleiðinlegt og versnaði þegar leið á daginn og  fór ekki að lægja fyrr en undir miðnætti. Ég tók mig til og þreif Skodann og bónaði hann. Það var þarft handtak og mikill munur að geta verið inni við þetta. Svo var bara restinni af inniverunni eytt í að letingjast.

Ég bið lesendur að fyrirgefa það að þetta kemur frekar seint inn. Annað hvort er um að kenna leti eða annríki. Ég þakka þeim sem lesa þetta langt í bullinu mínu Góðar stundir.

02.02.2012 01:05

Næstum því lögreglumaður

26.1.2012 20:41

4. túr

Þetta var svona þokkaleg innivera. Það snjóaði allmikið og gerði svo leiðinda færð þegar hvessti í þetta og fór að skafa. Ég fór að hafa af því áhyggjur að það myndi verða snjóavetur þannig að ég fjárfesti í nýjum dekkjum á Hondu til að hún væri til í slaginn annars ætlaði ég að spara mér það. Gert er ráð fyrir þíðviðri um helgina og þá koma svellin þannig að það er rétt að vera við öllu búinn. Reykjanesbrautin var ófær í morgun vegna snjóa en opnuð að ég held fyrir hádegi. Svo var skafrenningur þar þegar við fórum til Grindavíkur í dag.  En samt ekki farin að spillast færð. Við sturlungar fórum út kl 17.00 og stefna sett á Jökultunguna núna þar er alla vega ekki mikið um ýsu að ég held. Veður þokkalegt norðan kaldi þegar farið var en bjart og fallegt veður.

31.1.2012 13:19

Fyrsti dagurinn í þessum túr var hreint skelfilegur. Veltingurinn var meiri en við eigum að venjast hér. Dregið var með vindinn á hlið alla lögnina. Þetta var heldur skárra á þeim lögnum sem eftir komu en þó var að gera á okkur vindsperring nokkurn en þó með hléum. Við tókum þrjár lagnir þarna og svo var kippt í símasamband. Aflinn var nokkuð góður þarna úti en heldur lakari þar sem við vorum í gær. En það var á Búrbankanum. Eitthvað færðum við okkur í nótt þannig að það er ögn lengra heim en var í gær. Eitthvað erum við búnir að slíta í túrnum en slógum met í því í morgun en þá slitum við og slitum svo endann sem átti að draga niður þannig að ekki var um annað að ræða en dusta rykið af slæðunni og dýfa henni niður. Þetta urðu tvær dýfur því að í fyrri dýfunni fengum við eitthvert draugadrasl. Svo kom línan og þegar við vorum að brasa við hana þá var ég svo heppinn að fá krók í puttann en það var sem betur fer bara smá rispa eða kannski aðeins meira en ekkert stórslys.

1.2.2012 12:23

Þetta bras um morguninn var eina brasið en það var að vísu ekki alveg búið með því að slæða þetta því að endinn sem við slepptum niður hafði af einhverjum ástæðum orðið viðskila við baujuna sem á hann fór þannig að þeir slæddu hann til að spara sér kippinn í næstu bauju. Það tók mun minni tíma heldur en að keyra í næsta milliból. Þessar kjarnaslæður sem komnar eru í dag eru hreinustu töfratæki Það er annað en þetta keðjurusl sem var notað hér áður. En það voru fimm á milli. Aflinn var ekki neitt til að hrópa húrra yfir. Þetta var alveg ótrúlega blettótt og rokkaði aflinn á rekka frá  5 fiskum upp í rúmlega 200. Blandaður afli en mest þorskur, ýsa og langa. Búið að draga síðustu lögn um hálf tvö. Og í landi kl sex í morgun.  Veður var gott í landi og var það vel enda ákvað ég að nú væru jólin loksins búin og tók niður seríurnar sem úti voru en það hefur aðeins tafist hjá mér vegna ófærðar á þaki og lóð. En nú er allt orðið autt eða þar um bil og bara örlítill snjór eftir á minni lóð. Það er í rabbabara beðinu. Seríurnar eru komnar í naust og verða þar til næstu jóla og dekkin undan Hondu líka komin á dekkja loftið í skúrnum. Ég keypti dekk undir hondu í síðustu inniveru og þá fór snjórinn. Ég hefði betur fjárfest fyrr þá hefði kannski ekki komið neinn snjór. Ég tók til í skúrnum í dag en það er víst óþrjótandi verkefni og alltaf hægt að finna sér eitthvað til dundurs þar. Tiltektin fer nú að mestu þannig fram að maður flytur hluti úr stað og finnur þeim nýjan og þá virðist vera snyrtilegra hjá manni eða alla vega öðru vísi en það var áður. Ég læt þessum pistli lokið að sinni. Þjóðmálaumræðunni  vil eg ekki gera skil núna en þar er margt sem angrar hugann. Fréttir eru alltaf jafn yndislega skrifaðar og er það vel að hafa þær læsilegar. Enda fréttaritarar með menntun í faginu og kunna að haga orðum þannig að skemmtun sé að. Samanber fréttina af manninum sem ók á næstum því lögreglumann. Ég var svo smásálarlegur að ég var að velta fyrir mér hversu mikið manninn vantaði til að vera lögreglumaður en ekki bara næstum því. Jæja þetta er nóg bullað að sinni. Góðar stundir lesendur góðir.




Þetta eru gamlar myndir en því miður á ég ekki neinar nýjar sem gaman er að setja hér . kannski koma þær einhvarn tíma.

25.01.2012 15:40

Snjórinn er ekki leiðinlegur.

19.1.2012 22:39

3. túr.

Þá er stríðið hafið að nýju. Það er ekki langt stopp í landi. Fórum út kl. Rúmlega fjögur í dag. Veðrið var bara ágætt sólskin og einhver norðan kæla held ég. Stefnt eitthvað norður. Gæti trúað að við færum eitthvað nálægt því sem við vorum síðast. Áætlaður komutími er um tvöleitið.

23.1.2012 01:21

Þá eru að verða búnar þrjár lagnir og aflinn rétt skriðinn yfir hundrað körin. Fyrsta lögnin var mjög léleg nákvæmlega kar á rekka og þá var kippt eitthvað austar sirka tíu mílur. Það byrjaði verulega vel þar á hálfan rekka en síðan var það sama ördeyðan Þar á eftir. Svo síðustu nótt var kippt upp undir jökul og þar var þokkalegur fjöldi af fiskum en frekar smá ýsan sem við vorum að fá miðað við ýsuna sem við fengum utar. Þorskurinn var hins vegar þokkalega stór. Svo var náttúrulega dálítið af drasli með eins og gengur það er bara svo. Keila, langa, lýsa og karfi allt frekar í smærri kantinum.  Nú er bara að sjá hvað morgundagurinn færir okkur úr gullkistunni.

24.1.2012 13:17

Fjórða lögnin var okkur ekki hagstæð. Þá var kippt inn með Snæfellsnesinu og lagt þar. Of mikið af ýsu reyndist í aflanum og því var okkur uppálagt að færa okkur og erum við með síðustu lögn á Búrbankanum skilst mér. Það var ekki búið að leggja fyrr en um áttaleitið en þá var farið að draga og aflinn var slakur. Það var alveg vitlaust veður í nótt og svo undir morgun þá moksnjóaði og varð alveg virkilega sleipt og ógeðslegt uppi en vindinn lægði mikið og það var gott. Ég náði að loka fimm körum á vaktinni og var það heldur lítið og svo er ýsa hérna líka. Kannski lagast þetta.Þorskurinn er góður sem við erum að fá.

25.1.2012 15:22

Ekki er ég nú með það á hreinu hvað aflinn var á þessa lögn en heildin var um 190 kör. Búið var að draga um hálfþrjúleitið í nótt og vorum við í landi um hálf sjö í morgun í ágætisveðri. Logn var og nokkuð frost. Ekki var nú mikill snjór í Grindavík miðað við það sem oft hefur verið. Samkvæmt spá þá gerði ég alveg eins ráð fyrir einhverri ófærð þar en við sluppum við það. Bogga kom á Hondu að sækja mig þar sem okkar gata er varla fólksbílafær. Líklega um níu leitið byrjaði að snjóa allmikið og var bara lítið skyggni hér út um hádegisbilið. Samt var enginn skafrenningur bara ofankoma. Eftir hádegið stytti upp og birti og þá dreif ég mig út með myndavélina til að þessi snjóavetur falli nú ekki í gleymsku. Það geta liðið mörg ár þar til annað eins sést hér á stórhafnarfjarðarsvæðinu. Svona langvarandi snjóakafli hefur ekki komið síðan við fluttum hingað. Að myndatöku lokinni rölti ég hér út götuna til að kynna mér færðina eftir þetta él og á þeirri leið var einn bíll fastur og aðstoðaði ég við að koma honum af stað. Þeir eru bísna margir sem hafa lent í vandræðum í götunni í morgun ef eitthvað er að marka það sem eg sá af spólförum. Það er ljóst að ég kemst ekki til að taka niður seríurnar vegna ófærðar á þaki og lóð. Ég ætla að láta þetta duga að sinni. Góðar stundir.


Það er komið svolítið á þakið.

Ölurinn er alveg að sligast.

19.01.2012 22:08

Misnotaðar iðnaðarvörur

Túr 2         12.1.2012 20:18                                                         

Farið var út frá Njarðvík um fimmleitið í  dag 12 jan.  Ekkert sögulegt við það þannig lagað. Kosturinn kom þangað dálítið fyrir fimm. Viðar var settur í frí en síðan var hann með fyrstu mönnum sem ég sá um borð.  Ástæðan var að Sjonni forfallaðist þannig að þá vantaði einn og Viðar fékk því ekki fríið. Sjonna varð einhvar fótaskortur í lestinni í síðasta túr og það var svo sem ekkert skrítið í þessum andskotanst veltingi sem var.  Vaktirnar voru þannig skipaðar að á vaktinni hjá Bigga voru Viðar, Robbi, Guðjón, og Benni. Á minni vakt voru Óli vél, Jón Óli, Árni og Villi. Benni var lestarmaður á hinni vaktinni en ég á minni vakt.  Stefnan var í Kolluál .  Veður var frekar umhleypingasamt og menn voru að fá svona skvettur á rúllunni en það er nú bara venjulegt. Það var töluvert hvassviðri þegar við byrjuðum að leggja og kom það í minn hlut að byrja og mátti ég hafa mig allan við að passa að sértinn lenti ekki inn fyrir í byrjun. Það er stundum að gerast þegar byrjað er með vindinn á bakborðið. Það var að sjálfsögðu blandaður afli sem sóst var eftir. Þorskur var í meirihluta en svo var allnokkuð af löngu og keilu og ýsa var þarna líka enda megum við koma með eitthvað af ýsu en það er ekki mikið.  Nú er svo komið að ekki má veiða lúðu því verður að henda henni. Það heitir að sleppa og las ég í dag sérstaka útfærslu á því hvernig fara skuli að. Skera skal á tauminn og er það óbrigðult til að lúðan lifi af. Þetta á að sjálfsögðu við um minni lúður sem koma alveg upp að rúllu en stærri lúður slitna nú bara af niðri í sjó. Sé þetta gert svona þá heitir þetta ekki brottkast. Mér þætti hins vegar gaman að vita hvort lögunum sem segja að hirða skuli allan fisk hafi verið breytt til samræmis við þessi nýju lög.

Mér fannst það hins vegar sláandi að Hafrannsóknarstofnun skuli vera búin að berjast fyrir því í 14 ár að fá settar reglur um lúðuveiðar og bann við haukalóð. Það virðist þó ekki hafa verið að þvælast fyrir ráðherrum sjávarútvegsmála að neinu marki. Ég er búinn að furða mig á þessu í mörg ár af hverju ekki var lokað fyrir haukalóðina fyrr svo ekki þyrfti að koma til svona harkalegra aðgerða. Það er helvíti skítt að mega ekki koma með þetta lítilræði sem meðafla sem við erum að fá öðru hverju.

Aflinn í túrnum var um 220 kör og komum við í land kl 06.00 á þriðjudagsmorgni. Þá var svona éljagangur nýlega byrjaður en lítill vindur. Breyttist svo í storm eins og hendi væri veifað um ´hádegisbilið.

Silikonbrjóst hafa verið allnokkuð til umræðu undanfarið og sýnist sitt hverjum um þau. Borið hefur á því að þau hafi viljað dreifa sér eitthvað frá upphaflegum ísetningarstað. Skýringa var leitað á þessum lekanda til þess í og með að athuga hvort ekki mætti með því  finna einhvern sökudólg sem hægt væri að hengja fyrir þetta brjóstaflakk. Athugun leiddi í ljós að um iðnaðarsílikon var að ræða sem notað var í þessa púða en það virðist einmitt hafa alveg sérstaka eiginleika í þá veru að vilja ekki liggja kyrrt í gröfinni. Þá lá náttúrulega beinast við að hengja lækninn sem flutti inn ósköpin. Það er nú bara gott og blessað og nú liggur hann undir kærum frá þeim konum sem virðast ekki hafa átt neitt val um það hvort þær létu planta þessum óþverra í sig.

Annað mál var viðrað líka á dögunum en það er svokallað iðnaðarsalt sem ku hafa verið notað svo árum skiptir í matvæli. Sú umræða er með hreinum ólíkindum og bara hlægileg. Mér finnst athyglivert  þegar fjallað er um málið að alltaf er talað um matvælaframleiðslu en ekki matvælaiðnað því ekkert væri eðlilegra en að nota iðnaðarsalt í matvælaiðnaði.

Já það er víða pottur brotinn í þjóðfélaginu og nú er bara að bíða og sjá hvað verður næsta stóra fréttaefni. Verða það náttúruhamfarir eða eitt iðnaðarhneykslið enn.

Ég læt þessum pistli lokið að sinni. Góðar stundir.